Áður en þú pantar

 

 

Á vefnum er hægt að leggja inn pantanir á sérskreyttum kökum í stærðinni 15 manna og stærri. Sé óskað eftir minni kökum fást þær í bakaríinu okkar í Hagkaup Smáralind en einnig í kælum í öllum Hagkaupsverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Afhending pantana fer ávalt  fram í Hagkaup Smáralind og sá aðili sem sækir kökuna þarf að samþykkja útlit hennar svo hægt sé að leiðrétta mistök, ef einhver eru, á staðnum. Ef ekki á að bera kökuna fram samdægurs, þarf að geyma hana í kæli.

 

Þegar bragðtegund (fylling) hefur verið valin er komið að skreytingunni. Þegar þú velur sérskreytinguna þína er gott að styðjast við myndir af skreytingum sem að við höfum gert áður. Hafið í huga að hver kaka er einstök og engar tvær kökur alveg eins, jafnvel þó farið sé eftir mynd. Við gerum þó okkar besta við að fara eftir óskum viðskiptavina en athugið að litir geta verið mjög mismunandi frá einum skjá til annars og erfitt að fara eftir mjög nákvæmum lita-óskum.  Ef óskað er eftir skreytingu sem við höfum ekki gert áður förum við frammá að hún sé send á okkur áður en pantað er, annað hvort á facebook skilaboðum eða tölvupósti. Sé það tilfellið lengist fyrirvarinn úr tveimur dögum í allt að fimm virka daga. Annars getum við ekki tryggt að við náum að afgreiða pöntunina eins og óskað er eftir. Alla jafna er tveggja daga fyrirvari nægur en hafið í huga að stundum náum við ekki að anna eftirspurn og þurfum þá að loka fyrir pantanir áður en pantanafrestur er liðinn.

 

Hægt er að skoða öll myndaalbúminum okkar hér. Við erum einnig með fleiri myndir á facebook síðunni okkar hér.

 

 

Stærðir

8 manna kökur eru um 15cm í þvermál og ca 8cm á hæð

12 manna kökur eru um 15cm í þvermál og ca 12cm á hæð

16 manna kökur eru um 22cm í þvermál og ca 8cm á hæð

25 manna kökur eru um 22cm í þvermál og ca 12 cm á hæð

15 manna kökur á tveimur hæðum eru um 15cm í þvermál og ca 20cm á hæð.

35 manna kökur eru á tveimur hæðum og neðri hæðin er um 22cm í þvermál.

55 manna kökur eru á þremur hæðum og neðsta hæðin er um 22cm í þvermál.

 

Þemakökur

Myndaalbúm

Við getum gert skreytingar fyrir alls konar þema. Það má endilega skoða myndirnar í þemaköku albúminu okkar fyrir hugmyndir og svo er hægt að senda á okkur línu til að reyna að koma upp með nýja þema. Það er einfaldast fyrir okkur að nota sykurmassaskilti með áprentaðri mynd í þemanum og svo skreyta kökuna í litaþema.

Við getum einnig notað lítil leikföng og fígúrur í skreytingarnar á þemakökum. Það er þá hægt að taka það fram við pöntun svo að við getum gert ráð fyrir því í skreytingunni eða komið með dótið til okkar í Hagkaup í Smáralind svo að svo við getum komið því fyrir á tertunni.

 

Kynjakökur

Myndaalbúm

Kynjakökur þurfa að vera pantaðar með lágmarks tveggja daga fyrirvara eins og aðrar tertur. Koma þarf kynjaumslaginu til okkar deginum áður en afhenda á kökuna.

 

Nafnaskilti

Við getum prentað út nafnaskilti á sykurmassa en fyrir nafnastanda með útskorin nöfn mælum við með 29 línum https://www.29linur.com/voruflokkur/utskurdur/

 

Litir og skreytingar

Þar sem við erum að handblanda litina í kremunum okkar er ekki hægt að lofa að þeir verði alltaf eins. En við reynum okkar besta að koma sem næst þeim litum sem að eru í myndunum sem að fylgja með pöntunum. Smjörkrem er einnig ekki  alveg hvítt heldur er alltaf smá gulur keimur í því þannig að það getur haft áhrif á litablöndunina. Hafið í huga að hver kaka er einstök og hver og einn af okkar starfsmönnum hefur sinn stíl, því eru engar tvær kökur alveg eins

 

Brúðartertur

Myndaalbúm

Brúðarterturnar okkar eru ýmist með súkkulaði eða vanillukaramellubotni og það eru fjórar fyllingar í boði 

Jarðaber, hvítt súkkulaðimousse og kampavínsganache

Hvít súkkulaðimousse Lemoncurd og ylliblóm (eins og brúðarterta Harry og Meghan)

Belgísk súkkulaðimousse með hindberjum

Baileys og karamellufrappochino

Lágmarksfjöldi fyrir brúðartertubragðtegundirar er 35 manns en það er einnig hægt að skreyta hefðbundnu bragðtegundirnar okkar sem brúðartertur fyrir minni veislur.